Íslenskt kerfi, smíðað með stofunum sem nota það
Á bak við Fótaskrá stendur ekki stórfyrirtæki heldur einn forritari sem svarar sjálfur í símann.
Ég heiti Guðni Már Ægisson og smíða og rek Fótaskrá í gegnum Vefhjálp, litla íslenska hugbúnaðarstofu. Ég starfa við upplýsingatækni og hugbúnaðarþróun og smíða kerfi fyrir íslensk fyrirtæki.
Fótaskrá varð til vegna þess að fótaaðgerðafræðingar þurftu kerfi sem passar þeirra vinnu: sjúkraskrá, dagbók, myndir og áminningar á einum stað, á íslensku, á sanngjörnu verði, og byggt á kröfum laga um sjúkraskrár.
Kerfið er þróað í nánu samstarfi við stofurnar sem nota það. Þegar stofa bendir á eitthvað sem mætti vera betra ratar það oft inn í kerfið innan fárra daga. Margt af því sem er í Fótaskrá í dag kom beint frá fótaaðgerðafræðingum.
Það sem skiptir mig máli
Gögnin eru þín
Stofan á sjúkraskrárnar. Þú getur flutt allt út hvenær sem er, með myndum og skjölum.
Öryggi fyrst
Tveggja þrepa innskráning, aðgangsskráning, dagleg afritun og stöðug vöktun.
Beint samband
Þú talar við þann sem smíðar kerfið, ekki þjónustuver. Svar fljótt og á íslensku.
Hafðu samband
Langar þig að prófa Fótaskrá, eða viltu bara spjalla um hvort hún henti þinni stofu? Sendu mér línu á gudni@fotaskra.is eða hringdu í 644 4444.