Notkunarskilmálar
1. Aðilar
Þessir skilmálar gilda um notkun á Fótaskrá, rafrænni sjúkraskrá og dagbók fyrir fótaaðgerðafræðinga. Þjónustuveitandi er Vefhjálp, Guðni Már Ægisson, kt. 0103872139 („Vefhjálp"). Viðskiptavinur er sú stofa eða sá aðili sem skráður er fyrir aðgangi („stofan").
Með því að nota Fótaskrá samþykkir stofan þessa skilmála, ásamt vinnslusamningi og persónuverndarstefnu.
2. Þjónustan
Fótaskrá er veflausn sem stofan notar til að færa sjúkraskrá, bóka tíma, senda SMS-áminningar og varðveita myndir og fylgigögn. Vefhjálp sér um hýsingu, rekstur, afritun, öryggisuppfærslur og þróun kerfisins.
Fótaskrá getur tengst þjónustu þriðja aðila sem stofan velur sjálf, t.d. bókunarkerfinu Noona. Um þá þjónustu gilda skilmálar viðkomandi aðila.
3. Aðgangur og notendur
- Hver starfsmaður fær eigin aðgang og ber ábyrgð á að halda lykilorði sínu leyndu. Aðgang má ekki deila með öðrum.
- Stofan hefur að minnsta kosti einn stjórnanda sem getur bætt við starfsmönnum, breytt hlutverkum þeirra og lokað aðgangi.
- Stofan ber ábyrgð á að aðeins þeir sem til þess hafa heimild fái aðgang og að aðgangi sé lokað þegar starfsmaður hættir.
- Hver starfsmaður undirritar trúnaðaryfirlýsingu við fyrstu innskráningu.
- Mælt er eindregið með tveggja þrepa auðkenningu fyrir alla notendur.
4. Prufutími
Ný stofa getur fengið prufutíma án endurgjalds. Lengd prufutímans er tilgreind þegar aðgangur er stofnaður. Rukkun hefst þann dag sem prufutíma lýkur nema stofan segi upp áður.
5. Verð
- Stofa: 14.990 kr. á mánuði. Einn notandi er innifalinn.
- Hver notandi umfram innifalda: 1.990 kr. á mánuði.
- SMS-áminningar: 8 kr. fyrir hvern SMS-hluta sem er sendur.
Öll verð eru án virðisaukaskatts. Sérsamningar og afslættir koma fram á reikningi. Vefhjálp getur breytt verðskrá með eins mánaðar fyrirvara sem tilkynntur er stofunni í tölvupósti.
6. Notendur og verð
- Notandi telst með í verði þegar hann hefur virkjað aðgang sinn. Boð sem ekki hefur verið svarað kostar ekkert.
- Bætist notandi við á miðju tímabili greiðist hlutfallslega frá þeim degi, og kemur það á næsta reikning.
- Notandi sem er gerður óvirkur er ekki rukkaður næsta mánuð. Greiðsla fyrir yfirstandandi mánuð er ekki endurgreidd.
- Móttökuaðgangur telst notandi eins og aðrir.
7. Reikningar og greiðslur
- Reikningar eru gefnir út 25. hvers mánaðar og stofnast sem krafa í netbanka stofunnar.
- Reikningur sem gefinn er út 25. nær yfir þann mánuð sem hann er gefinn út í. Hafi annað verið samið um, t.d. fyrirframgreiðslu fyrir næsta mánuð, kemur það fram á reikningi.
- Fyrsti reikningur nær frá þeim degi sem rukkun hefst, reiknað hlutfallslega til mánaðamóta.
- SMS eru greidd eftir á. Reikningur ber SMS sem send voru frá 25. degi fyrri mánaðar til og með 24. degi útgáfumánaðar.
- Gjalddagi er 1. dagur næsta mánaðar og eindagi 5 dögum síðar. Ef greitt er eftir eindaga reiknast dráttarvextir.
- Stjórnandi stofunnar getur séð alla reikninga og sótt þá sem PDF í Stillingum → Reikningar.
- Vefhjálp getur takmarkað aðgang stofu ef reikningur er ógreiddur 30 dögum eftir eindaga, að undangenginni viðvörun í tölvupósti. Gögnum stofunnar er aldrei eytt vegna vanskila.
8. Uppsögn
Stofan getur sagt upp áskrift með eins mánaðar fyrirvara miðað við mánaðamót. Uppsögn skal send á gudni@fotaskra.is. Greidd áskrift er ekki endurgreidd.
Vefhjálp getur sagt upp samningi með þriggja mánaða fyrirvara, eða fyrirvaralaust ef stofan brýtur gegn skilmálum með alvarlegum hætti.
9. Sjúkraskrárupplýsingar og persónuvernd
- Stofan er ábyrgðaraðili sjúkraskrárupplýsinga samkvæmt lögum nr. 55/2009 um sjúkraskrár og lögum nr. 90/2018 um persónuvernd. Vefhjálp er vinnsluaðili.
- Um vinnsluna gildir sérstakur vinnslusamningur sem stofan samþykkir við fyrstu innskráningu.
- Vefhjálp skoðar ekki sjúkraskrárupplýsingar nema stofan óski þess vegna þjónustubeiðni eða það sé nauðsynlegt til að tryggja öryggi og rekstur kerfisins. Slíkur aðgangur er skráður.
- Allar uppflettingar í sjúkraskrá eru skráðar í aðgangsskrá sem stofan getur skoðað.
- Gögn eru hýst í gagnaveri innan Evrópska efnahagssvæðisins.
10. Afritun og útflutningur gagna
Gögn eru afrituð reglulega og afritin geymd dulkóðuð á öðrum stað en kerfið sjálft. Stofan getur hvenær sem er flutt út allar sjúkraskrár sínar, með myndum og skjölum, úr Stillingum → Útflutningur.
Við starfslok eru gögn stofunnar varðveitt í 90 daga svo hún geti sótt þau. Að þeim tíma liðnum er gögnunum eytt, nema lög kveði á um annað eða um annað sé samið.
11. Ábyrgð
Vefhjálp leggur sig fram um að kerfið sé aðgengilegt og öruggt en ábyrgist ekki að það sé alltaf án truflana. Fyrirhugað viðhald er framkvæmt utan venjulegs vinnutíma eftir því sem kostur er.
Vefhjálp ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, rekstrartapi eða tjóni sem hlýst af rangri notkun, ytri atvikum eða þjónustu þriðja aðila. Hámarksábyrgð Vefhjálpar takmarkast við áskriftargjöld síðustu þriggja mánaða.
12. Breytingar á skilmálum
Gildandi skilmálar eru alltaf birtir á fotaskra.is/skilmalar og í Stillingum í Fótaskrá. Efnislegar breytingar eru tilkynntar stofum í tölvupósti að minnsta kosti 30 dögum áður en þær taka gildi.
13. Lög og varnarþing
Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skal reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.