Rafræn sjúkraskrá og dagbók · Íslensk

Sjúkraskrá sem er þægileg í notkun

Fótaskrá er sérhönnuð fyrir fótaaðgerðafræðinga. Sjúkraskrá, myndir, tímabókanir og SMS-áminningar á einum stað — byggð á kröfum laga um sjúkraskrár, svo stofan þín sé tilbúin fyrir skyldu um rafræna sjúkraskrá 1. desember 2026.

✓ Dagbók & SMS-áminningar ✓ Myndavél í vafranum ✓ Lög um sjúkraskrár ✓ Tveggja þrepa innskráning ✓ Dagleg afritun
app.fotaskra.is
Skjámynd af Fótaskrá
Eiginleikar

Allt sem stofan þarf — ekkert óþarfa

Frá tímabókun til útskriftar: bókaðu tímann, sendu áminningu, skráðu komuna og taktu myndir — í einu kerfi sem er hannað fyrir þitt vinnuflæði.

📝
Meðferðarnótur
Skipulegir reitir fyrir ástæðu komu, sjúkrasögu, skoðun og áætlun. Grunnupplýsingar um lyf, sjúkdóma og ofnæmi fylgja sjúklingnum á milli koma.
📅
Dagbók
Dálkur á hvern starfsmann, dags- og vikusýn, opnunartími, lokanir og frí. Endurteknar bókanir með einum smelli — og hægt að bóka án þess að stofna sjúkraskrá fyrst.
📱
SMS-áminningar
Sjálfvirk áminning til skjólstæðings fyrir tímann, með nafni stofunnar sem sendanda. Þú velur hvenær og hvaða texti fer — og skjólstæðingar geta afþakkað.
📷
Myndir beint úr vafranum
Taktu mynd með spjaldtölvu eða síma beint inn í komuna — engin millilending í myndasafni tækisins. Stækkaðu, súmmaðu og berðu saman myndir milli koma.
🔎
Fljótleg leit & tímalína
Leitaðu eftir nafni, kennitölu eða síma og sjáðu allar komur sjúklings í tímaröð. Skjöl, teikningar og samantektir við lok meðferðar á sínum stað.
👥
Aðgangsstýring
Hver starfsmaður með eigin aðgang og starfsheiti. Móttökuaðgangur sér dagbókina en ekki sjúkraskrár — og trúnaðaryfirlýsing er undirrituð við fyrstu innskráningu.
🔐
Öryggi
Tveggja þrepa innskráning, dulkóðuð tenging, skráning á öllum aðgangi að sjúkraskrám og stöðug öryggisvöktun. Gögn eru afrituð reglulega og geymd á öðrum stað.
🧾
Aðgangsskráning
Hver opnaði hvaða sjúkraskrá, hvenær og hver breytti hverju — með nafni og starfsheiti. Fyrri útgáfur komu eru varðveittar þegar þeim er breytt.
🔗
Noona-tenging Væntanlegt
Notarðu Noona fyrir tímabókanir? Bókanir úr Noona birtast sjálfkrafa í dagbók Fótaskrár og tengjast sjúkraskrá skjólstæðings eftir kennitölu.
Lög um sjúkraskrár

Tilbúin fyrir rafræna sjúkraskrá

Með lögum nr. 81/2025 verður skylt að færa sjúkraskrá rafrænt. Fótaskrá er byggð á kröfum laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár, svo þú þarft ekki að hugsa um það.

📅 Gildir frá 1. desember 2026
Pappírinn og Excel-skjölin duga ekki lengur
Rafræn sjúkraskrá þarf að gera meira en geyma nótur. Hún þarf að skrá hver skoðar hvað, varðveita fyrri útgáfur og gera skjólstæðingi kleift að nýta rétt sinn. Þetta er allt innbyggt í Fótaskrá — án aukakostnaðar og án þess að þú þurfir að gera neitt sérstakt.
✓
Nafn og starfsheiti þess sem skráir fylgir hverri færslu 5. gr.
✓
Breytingasaga — fyrri útgáfa komu er varðveitt við hverja breytingu 5. gr.
✓
Ekkert hverfur — myndum og skjölum er ekki eytt endanlega 7. gr.
✓
Útflutningur allra sjúkraskráa stofunnar ef starfsemi hættir 10. gr.
✓
Aðgangsbann — skjólstæðingur getur bannað tilteknum starfsmanni aðgang 13. gr.
✓
Afrit og aðgangsyfirlit fyrir skjólstæðing með einum smelli 14. gr.
Verð

Eitt verð — allt innifalið

Enginn stofnkostnaður og engir aukapakkar. Prófaðu frítt áður en nokkuð er rukkað.

Stofa
14.990 kr./ mánuði
Án VSK · einn notandi innifalinn
Sjúkraskrá og meðferðarnótur
Dagbók og tímabókanir
Myndir, teikningar og skjöl
Byggð á kröfum laga um sjúkraskrár
Tveggja þrepa innskráning
Dagleg afritun og vöktun
Uppfærslur og nýir eiginleikar
Íslensk aðstoð beint frá forritara
Hver notandi umfram einn
1.990 kr./ mánuði án VSK
Hver starfsmaður fær eigin aðgang og starfsheiti, eins og lög gera ráð fyrir.
SMS-áminningar
8 kr./ SMS-hluta án VSK
Aðeins greitt fyrir það sem er sent. Venjuleg áminning á íslensku er 1–3 hlutar, og þú sérð lengdina í stillingum. Hægt er að slökkva á áminningum hvenær sem er.
Hvernig virkar það

Komist í gang á þremur skrefum

1
Sæktu um aðgang
Fylltu út umsóknarformið hér að neðan. Ég set upp stofuna og sendi þér boð í tölvupósti.
2
Settu lykilorð
Þú velur þitt eigið lykilorð og getur strax kveikt á tveggja þrepa innskráningu.
3
Byrjaðu að nota
Settu inn meðferðir og opnunartíma, bókaðu fyrsta tímann og skráðu komu — engin flókin uppsetning.
Sækja um aðgang

Komdu þinni stofu í gang

Fylltu út formið og ég hef samband við þig fljótt.

Af hverju Fótaskrá?
Sérhönnuð fyrir fótaaðgerðafræðinga
Kerfið er smíðað með þínar þarfir í huga — ekki almenn sjúkraskrá sem reynt er að laga að þér.
⚡
Fljótlegt að læra — engir þjálfunardagar
📅
Dagbók og SMS-áminningar innifaldar
⚖️
Byggð á kröfum laga um sjúkraskrár
🇮🇸
Íslenskt kerfi með íslenskri aðstoð
💬
Beinn stuðningur frá þeim sem smíðar kerfið
Eða hafðu samband beint
📞 644 4444 ✉️ gudni@fotaskra.is
Umsóknarform
Við sendum þér aldrei ruslpóst. Persónuupplýsingar eru einungis notaðar til að hafa samband.
Spurningar

Algengar spurningar

Fyrir fótaaðgerðafræðinga og fótaaðgerðastofur af öllum stærðum — frá einyrkja í hlutastarfi til stofu með marga starfsmenn. Kerfið heldur utan um sjúkraskrá, tímabókanir, SMS-áminningar, myndir og fylgigögn.
14.990 kr. á mánuði fyrir stofuna, án VSK, og einn notandi er innifalinn. Hver notandi umfram einn kostar 1.990 kr. á mánuði og SMS-áminningar 8 kr. á hvern SMS-hluta. Enginn stofnkostnaður — og þú getur prófað frítt áður en nokkuð er rukkað.
Fótaskrá er byggð á kröfum laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár, eins og þeim var breytt með lögum nr. 81/2025: skráning nafns og starfsheitis við hverja færslu, breytingasaga, aðgangsskráning, afrit og aðgangsyfirlit fyrir skjólstæðing, aðgangsbann og útflutningur sjúkraskráa. Fótaskrá hefur einnig sótt um viðurkenningu hjá embætti landlæknis.
Já, tenging við Noona er á lokametrunum. Þú heldur áfram að bóka í Noona eins og áður og bókanirnar birtast sjálfkrafa í dagbók Fótaskrár. Ef kennitala skjólstæðings er skráð í Noona tengist bókunin beint við sjúkraskrána. Engar heilsufarsupplýsingar fara frá Fótaskrá til Noona.
Gögnin eru hýst í gagnaveri innan Evrópska efnahagssvæðisins og öll umferð er dulkóðuð. Kerfið býður upp á tveggja þrepa innskráningu, skráir allan aðgang að sjúkraskrám og er undir stöðugri öryggisvöktun. Gögn eru afrituð reglulega og afritin geymd á öðrum stað en kerfið sjálft.
Já. Fótaskrá keyrir í vafra á tölvu, spjaldtölvu og síma — ekkert þarf að setja upp. Á spjaldtölvu eða síma geturðu tekið myndir beint inn í komu skjólstæðings.
Já. Hver starfsmaður fær eigin aðgang, lykilorð og starfsheiti og birtist sem sér dálkur í dagbókinni. Einnig er hægt að fá móttökuaðgang sem sér dagbókina en hefur ekki aðgang að sjúkraskrám.
Gögnin eru þín. Þú getur flutt út allar sjúkraskrár stofunnar, með myndum og skjölum, hvenær sem er beint úr stillingum.
Hafðu samband
Ég svara fljótt og hjálpa þér að byrja.